Þessi námsvefur er lokaverkefni á námskeiðinu Hönnun námsefnis og stafræn miðlun, sem ég tók þátt í vorið 2017, sem hluta af framhaldsnámi mínu á Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kennari námskeiðsins var Torfi Hjartarson lektor við HÍ.
Kveikjan að gerð þessa námsvefs um smáforritið Puppet Pals er sú að ég hef farið víða með námskeið þar sem ég kenni grunnatriði í notkun forritsins. Ég hef séð það að ekki hafa allir nemendur mínir haft kjark og þor í að byrja strax að nota forritið og því lengur sem það dregst er líklegra að það verði ekki. Þess vegna er gott að geta vísað á þennan námsvef. Þannig getur fólk rifjað upp eða lært hvernig hægt er að nota forritið og einnig fengið einhverjar hugmyndir í viðbót við það sem hægt er að komast yfir á einu litlu námskeiði.
Við gerð þessa námsvefs var fylgt ákveðnu vinnulagi og verður það tíundað hér.
Í bókinni Designing Effective Instruction eftir þá Gary R. Morrison, Steven M. Ross og Jerrold E. Kemp er birt þetta líkan sem er endurbætt líkan Jerrolds. Líkanið er ekki tengt margmiðlun heldur námsefnisgerð og kennslu yfirleitt og miðar að kennslukerfum sem taka ekki bara til námsgagna heldur einnig kennslu, náms, forprófunar og mats. Líkanið gerir ráð fyrir endurteknu mati og endurbótum þar sem allir þættir eru undir með það fyrir augum að útrýma veilum í kerfinu. Mikil áhersla er lögð á kerfisbundin vinnubrögð og nákvæmar skilgreiningar á námsmarkmiðum, efnisatriðum, færniviðmiðum og þar fram eftir götum. Lítil áhersla er lögð á stíl, yfirbragð og miðlun efnis, athyglin beinist að þekkingaratriðunum, færniþáttunum og þeim náms- og kennsluferlum sem tryggja eiga skilvirkt nám. Mér finnst þetta áhugavert líkan og ákvað að það gæti nýst mér við hönnun á þessum námsvef. Torfi kynnti einnig fyrir okkur á námskeiðinu annað ferli sem hægt er að nýta við hönnun á gagnvirku efni. Ferli sem Kristof og Satran kynna í bók sinni Web ReDesign- Workflow that Works. Kristof og Satran tala um þrjú þrep hönnunar á gagnvirku efni. Tilgangurinn er ekki endilega sá að gefa uppskrift að efni sem unnt er að fylgja lið fyrir lið heldur á ferlislýsingin að varpa ljósi á alla hluta hönnunarinnar. Þannig draga þeir fram undirliggjandi meginatriði hönnunarinnar. Þrepin koma skipulagi á flókið og vandasamt verkefni. Þetta þrískipta ferli byggir á þremur einföldum spurningum.
Hvað á að búa til?
Hvernig á það að virka?
Hvernig á það að líta út?
Mér finnst þetta allt saman mjög áhugavert og mikilvæg þekking, það er ekkert grín ef maður byrjar á öfugum enda skal ég segja ykkur. Ég hef reynslu af því í heimasíðugerð ef fólk hefur verið upptekið af útliti vefjarins frekar en innihaldi. Það er alveg skelfilegt að fá slíka vefi í „viðgerð“ en ég hef reynslu af því. Hægt er að lesa meira um þetta viðfangsefni hér í grein eftir Torfa
Í upphafi vinnunar við vefinn ákvað ég að útbúa flæðirit til þess að vinna eftir og lítur það svona út.
Námsvefurinn er settur upp á ókeypis vefumsjónarkerfi sem heitir Weebly. Möguleiki er á því að færa vefinn þegar og ef það hentar yfir á annað lén, en ég sé einnig fyrir mér að hann geti alveg verið þar áfram, en tengst öðrum höfuðvef. Er ég þá með hugmynd að því að gera fleiri svona vefi um önnur smáforrit sem henta geta í kennslu ungra barna. Við gerð myndbandanna notaði ég smáforrit sem heitir Explain Everything. Smáforit sem ég hlóð niður í iPad og er sérlega hentugt til kennslumyndbanda gerðar. Í raun er þetta forrti hentugt fyrir allat mögulegt og er hægt að skoða möguleika þess hér.